Veikindavinnuviku lokið…Það er svo gaman að vera það stýflaður í nefinu að engin lykt finnst, erfit er að anda og vera alltaf að sníta sér. Það er líka gaman að vera stöðugt óglatt, eins og þegar maður er timbraður og vera stöðugt með eitthvað myglubragð í munninum. Stuð Stuð!!! Þetta hlítur að fara að lagast, annars fer ég að missa vitið. Ég ætla að fá mér í glas/glös annað kvöld og vonandi lagar það allavega myglubragðið
Sessilía er alltaf jafn hress og kát. Þegar ég sótti hana á leikskólann í dag þá sagði hún: “Það er gaman á leikskólanum.” Barnapíurnar hennar eru farnar í lúðrasveitarferðalega, held ég til Svíþjóðar, en við erum búnar að fá aðra sem heitir Anna og hittum við hana í fyrramálið. Æfing kl. 10, Dagur kvennaknattspyrnunnar kl. 12, Sindri-Huginn mfl. kk kl. 14 og fótboltadjamm um kvöldið. Sem sagt nóg að gera á morgunn
Eins og vanalega
Sigrún, ég var að frétta það í gær að það verður bikarmót í Motocrossi hérna á Höf fyrstu helgina í Júlí, á humarhátíðinni. Þið verðir að koma og vera með.
Minni á nýju myndasíðuna mína http://picasaweb.google.com/sandrasigm
Biðjum að heilsa
