Posted by: sandrasigm | september 12, 2008

Nýtt rúm

Það er ekki nóg að fá eigið herbergi, maður verður líka á fá nýtt, stórt prinsessu rúm.
 

Nýja rúmið kom með pósti í dag og brasaðist ég allan seinni partinn við að föndra það saman. Mér finnst samt óþarflega mikið af skrúfum afgangs. Ég prófaði að leggjast í það og það hélt tröllskessunni, svo það hlýtur að vera í lagi fyrir Sessilíu hehe

Gullmolar
Í morgunn missti Sessilía nokkra dropa í brókina og þá heyrðist: “Úppsadeisí”.

Við mæðgur vorum að spjalla saman í gærmorgunn um að amma hennar og afi hafi valið handa henni rúm og það sé leiðinni til okkar. Þá segir Sessilía: “Amma og afi eru svo góð við mig, og Sigrún og Halldór, og Ögri og Breki, og Höddi og Góa, og þau eiga líka trampolí og það er ekki rigning úti, er það ekki :) “.

 

Núna er skvísan sofandi í nýja prinsessu rúminu sínu og fróðlegt verður að sjá hvenær hún skríður uppí í nótt. Kristinn er í Reykjavík með fimleikaþjálfarana á námskeiði svo við mæðgur erum einar í kotinu og ætlum að dúlla okkur um helgina.

Mydir að ferð okkar með ömmunni og langömmunni í Kjarna hérna.

Myndir af ferð okkar í Geitafell í Hornafirði eru hérna.

Knúsi knús


Responses

  1. Til lukku með flutningana :) prinsessan ekkert smá flott í nýja rúminu sínu.

    Kv. Anna Bj.

  2. hæ.. Enn hvað hún er flott í nýja rúminu. Haltu svo áfram að vera dugleg að blogga svo ég hafi nú e-ð að gera í Danaveldunu.. ;)

    kv. Sigrún Sigm.


Leave a response

Your response:

Flokkar