Jæja þá byrjar það, haustið á Höfn með roki og rigningu :/
Sigrún og Halldór komin heil alla leið til Sigrúnar-tengdó í Danmörku og eigum við eftir að sakna þeirra.
Í gær borðuðum við nýjan þorsk frá Kidda Jónu pabba og nýuppteknar kartöflur sem Sessilía tók upp á leikskólanum. Þetta var fyrsta alvöru máltíðin okkar á nýja heimilinu og bragðaðist hún alveg rosa vel.
Nú situr skvísan í sófanum að horfa á hana Dóru sína. Hún stendur þó reglulega upp og dillar aðeins mjöðmunum í takt við tónlistina og singur “We did it, we did it”.
Fótboltaþjálfunin hjá mér byrjar á fullu eftir helgi. Þá verður nóg að gera því suma daga verða 4 æfingar á dag. Ætli ég verði ekki komin með gubbuna af fótbolta næsta haust, neee held samt ekki
Er ekkert of spennt núna, því þar er drottningarboltaæfing núna kl. 20:30 út á sparkvelli sem ég stjórna og það er grenjandi rigning og rok birrrrrrr
Þangað til næst
knús
Já ég er nú farin að sakna ykkar líka, get ekki beðið eftir því að þið komið i heimsókn til mín..
Fór í fyrsta göngutúrinn með einkaþjálfaranum mínum í morgun og gekk það bara nokkuð vel..
knús knús Sigrún
By: Sigrún Sigm. on september 10, 2008
at 11:22 am