Það er aldeilis fjör að vera á fótboltaleik
Ég veit ég er ekki dugleg að blogga hehe en Sigrún systir rekur mig áfram til þess. Sérstaklega núna þar sem hún og Halldór eru að flytja til Danmerkur eftir viku.
Við mæðgur skelltum okkur á suðverstur horið um helgina til að horfa á Kristinn keppa við KV í úrslitakeppninni í 2. deild og til að kvetja Sigrúnu áfram í motocrossinu. Sindrastrákarnir gerðu 2-2 jafntelfli við Knattspyrnufélag Vesturbæjar og eru því í þokkalegum málum fyrir seinni leikinn sem fer frá á Sindravöllum í dag kl. 17:30. Sigrún stóð sig mjög vel í síðustu umferðinni í Íslandsmótinu sem fór fram í góðu veðri í Bolöldu. Hún komst á pall í 2 gengis flokknum
frábært sys ![]()
Hér eru myndir af mótinu BOLALDA
Við mæðgur ætlum að halda Hafnarævintýrinu okkar áfram og vera hérna í vetur. Við erum fá nýja íbúð og hlakkar okkur mikið til að komast þar inn. Þar fær Sessilía sitt eigið herbergi í fyrsta skipti
Mikill spenningur fyrir því hehe Loksins lostna ég við allt dótið úr stofunni jibbííí
Sessilía er alveg hætt með belygju og finnst henni hún vera ægirlega stór stelpa og biður reglulega um á frá að hringja í ömmu sína og afa til að láta þau klappa fyrir sér hehe
Biðjum að heilsa í bili


Hilo..
Takk fyrir bloggið, já og allar myndirnar, mér lýður bara eins og ljósmyndafyrirsæta…
By: Sigrún Sigm. on september 2, 2008
at 12:46 pm
hehe já allar myndirnar, flott að þú sért dugleg að taka myndir Sandra mín, en er 500 myndir í einu ekki full mikið
Annars var gaman að hitta ykkur áður en við fórum út og nú verður þú að pressa á Sigrúnu að blogga líka þegar hún er komin út
By: Atli Már on september 3, 2008
at 12:28 pm
Já það dugar ekkert minna en 500 myndir á skvísuna
Já nú pressa á Sigrúnu að blokka líka…
By: sandrasigm on september 3, 2008
at 9:52 pm