Ferðin heim til Akureyrar var mjög góð. Sessilía fékk kjúkling og franskar á föstudagskvöldið, eins og hún var búin að panta. Afi klikkar sko ekki á því að gefa dúllunni sinni það sem hún biður um ![]()
Á laugardaginn skutumst við á Królinn og unnum einn knattspyrnuleik. Það var ansi erfitt en hafðist á 88 mín, 1-2 fyrir stórliði Sindra
Nautakjöt var síðan á boðstólnum á laugardagskvöldið og ekki af slakara kantinum. Ég er enn með góða bragðið í munninum jammmííííí
Síðan var skellt sér í ball klæðnaðinn og skundað af stað á pöbbana í miðbæ Akureyrar. Við Ester tjuttuðum þar aðeins og fengu síðan far heim með heimahjúkkunni hehehe
Sunnudagurinn fór í sundferð og afmæli hjá Guðrúnu Lindu. Þar fór ég mitt fyrsta framheljastökk á trampolíni jei hahahaha. Dagurinn endaði síðan á matarboði hjá Berghildi og co og léku dúllurnar sér saman alveg eins og englar. Ohh þær eru svo vel upp aldnar skvísur.
Mánudeginum var síðan eitt í búðir og meiri búðir hehehehe
Við brunuðum síðan aftur á Höfn í gærmorgunn á þess að stoppa því Sessilía svaf svo mikið. Þrátt fyrir ekkert stopp og góðan akstur þá tók þetta FIMM klukkustundir, algjör klikkun!!!!
Á morgunn er næst síðasti heimaleikurinn okkar í meistaraflokki og er hann á móti Fjarðabyggð/Leikni

Það eru komnar nýjar myndir af Akureyrarferðinni okkar hérna
Á föstudagsmorguninn leggjum við mæðgur af stað til Reykjavíkur með 3. flokk kvk. Þær eru eiga leik við Álftarnes seinni partinn. Síðan eigum við að vera mættar 5:15 morguninn eftir út á Keflavíkur flugvöll í flug til Noregs. Eins gott það verði sól og blíða í Oslo í næstu viku svo við verðum brúnar og sætar þegar við komum til baka.
Adios amigos
