Sessilía segir: “Gem’mer five!!!”
Eftir að það er hitt á lófan hennar segir hún: “Jei þú gastur það.”
Einn morguninn í vikunni erum við mæðgurnar að knúsast og þá segir Sessilía við mömmu sína: “Mamma, þú er góði besti vinur minn.” Ohh finnst ykkur þetta ekki sætt, ég allavegana bráðnaði.
Fyrir nokkrum dögum fórum við mæðgur út að hlaupa (ég hljóp, Sessilía hvatti mömmu sína áfram úr kerrunni). Við stoppuðum aðeins á leiðinni til að gefa hestunum gras og var sessilía ægilega ánægð með að einn hesturinn borðaði gras úr lófanum hennar. Þegar við fórum kallaði hún: “Bless hestur, takk fyrir að borða gras.”
Í dag förum við á Egilsstaði með 6 flokk kvenna að keppa þar á Hnátumóti og þaðan förum við mæðgur síðan áfram í höfuðstað norðursins. Við Sindraskvísur ætlum síðan að taka Stólana á Króknum í smá kennslustun á morgunn. Við Sessilía ætlum síðan að vera eftir og vera í smá sumarfríi fram á þriðjudag.
Myndir frá Humarhátíð hér.
Sjáumst á Eyrinni
Já hún Sessilía er allgör krúsidúlla, hlakka ekkert smá til að sjá ykkur í kvöld.
By: Sigrún Sigm. on júlí 18, 2008
at 11:50 am