Posted by: sandrasigm | júlí 7, 2008

Hátíð á Höfn liðin

Góð helgi liðin! Það var fjölmennt á Smárabrautinni. Mamma og pabbi komu og voru með hjólhýsið á planinu og nágrannar þeirra gátu ekki séð af þeim lengur og plöntuðu hjólhýsinu sýnu þétt upp við þeirra. Sessilía var alveg í skýjunum að hafa allt þetta fólk í kringum sig og er með fráhvarfseinkenni núna. Það verður nú ekki löng pása hjá okkur núna, því við ætlum að bruna til Reykjavíkur á miðvikudaginn og fara á Símamótið.

Sessilía fer í frí á leikskólanum eftir næstu helgi þannig á þá fer mamma einnig í frí, jibbí jei :)

Sessilía klikkar ekki á bröndurunum og í dag kom þetta þegar við sátum við kvöldverðarborðið:”Mamma, hlæjum núna ahahahahaha”, og hún fór að skelli hlæja :)

SS & SD

PS. myndir koma fljótt inn af helginni.


Responses

  1. Verðið þið mæðgur einnig um helgina í Rvík?? ég mun nefnilega vera þar að slæpast eitthvað á þeim tíma….

  2. Já við verðum fram á sunnudag/mánudag í RVK svo við verðum endilega að hittast!

    Verðum í bandi

  3. Nýjar myndir komnar inn….

  4. Hæjj.
    Fyrst ætla ég að lýsa óánægju minni á því að það sé ekki komið neitt blog.
    En annars flottar myndir en gerði Sessilía ekkert annað alla helgina annað en að láta greiða sér og borða skyr ?? ;)

    Hlakka ekkert smá til að hitta ykkur á föstudaginn :K


Leave a response

Your response:

Flokkar