Posted by: sandrasigm | júní 2, 2008

Höfn

Jæja þá á að reyna þetta blogg aftur eftir ansi langt hlé

Við Sessilía búum núna á Höfn í Hornafirði. Ég er að þjálfa 4 kvk flokka ásamt Jónu Benný og spilum við báðar með meistaraflokk.
Sessilía plummar sig vel hérna. Hún er á leikskólanum Krakkakot, sem er heilsuleikskóli og er hún mjög ánægð þar. Allavega sagði hún þegar ég sótti hana í gær: “Mamma, það er gaman í leikskólanum”.
Það var morgunæfing í dag og var veðrið svo gott að ég var komin á stuttermabol og stuttbuxur fyrir kl. 6. Eftir æfingu skelltum við Sessilía okkur í sund til að sleikja sólina. Þá kom annar gullmoli frá henni.
Sessilía: “Ullabjakk”
Mamma: “Hvar er ullabjakk?”
Sessilía: “Það er ullabjakk í sundbrókinni minni!!!!”
Ég stekk af stað og kríp um rassin á henni, en sem betur fer var nú ekkert ullabjakk komið hehe
Núna ætlum við að gera okkur klárar og fara á völlinn. M.fl. karla er að spila í bikarnum við Spyrni.
Sandra og Sessilía

Leave a response

Your response:

Flokkar