Í gær skelltum við okkur í sirkus í fyrsta skipti saman. Kristinn og ég vorum að þjálfa nánast þangað til sirkusinn byrjaði og var Sessilía í pössun hjá foreldrum Kristins. Þegar við sóttum hana og sögðum henni að við værum að fara í sirkus að hitta trúð þá fór hún að skæla og vildi fara heim. Við hættum þá að tala um trúða en hún vildi samt bara heim. Við fórum þó samt í sirkusinn.. Þegar ég var að kaupa popp fyrir Sessilíu þá gubbaði hún aðeins en við ákváðum samt að fara inn og horfa. Þegar sýningin hófst og “findinn karl” byrjaði þá heimtaði Sessiía að fara heim. Við vorum alveg að vera komnar út úr tjaldinu þegar stelpa byrjaði að sveifla sér í róli í loftinu og þá vild mín sko ekki fara heim lengur. Hún klappaði og dansaði það sem eftir var af sýningunni og skemmti sér konunglega
Í dag, eftir að Sessilía koma heim að leikskólanum var hún með Kristni þangað til hún fór að sofa. Mamma hennar var að þjálfa frá 16:00 til 21:30 með tveim smá pásum á milli til að borað. En á morgunn er engin þjálfun mjá mömmunni svo við mæðgurnar getum sprellað eitthvað skemmtilegt saman
Við komum svo heim til Akureyrar á föstudagskvöldið og förum til baka á mánudagsmorguninn.
Biðjum að heilsa í bili





